Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
![Nordiska ministerrådets generalsekreterare Karen Ellemann.](/sites/default/files/styles/content_size_800/public/2023-01/_F1A7190.jpg?itok=15rQt0DM)
Karen Ellemann
Ljósmyndari
Mathilde Schmidt / Norden.org
Karen Ellemann frá Danmörku er framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún hóf störf 1. janúar 2023.
Karen Ellemann sat á danska þinginu frá árinu 2007 til 2022 og hefur jafnframt átt sæti í Norðurlandaráði. Þá hefur hún gegnt embætti samstarfsráðherra Norðurlanda, sjávarútvegs- og jafnréttisráðherra, félags- og innanríkisráðherra og umhverfisráðherra.
Ellemann er einnig fyrrverandi formaður Norræna félagsins í Danmörku.
Tengiliður